Björgvin Sigurbjörnsson aðstoðarskólastjóri og Sigurður Gísli Guðjónsson tóku við blómvöndum úr hendi bæjarstjóra við skólasetninguna
Nýir skólastjórnendur Grunnskóla Grundarfjarðar settu nýtt skólaár í dag að viðstöddum fjölda nemenda, kennara og foreldra. Sigurður Gísli Guðjónsson situr nú sinn fyrsta vetur sem skólastjóri grunnskólans og lagði línurnar fyrir veturinn við setningu skólans í dag. Það var síðan nýr aðstoðarskólastjóri, Björgvin Sigurbjörnsson sem setti skólann formlega.