Stórsveit Snæfellsness er áfangi í Fjölbrautaskóla Snæfellinga og er sveitin skipuð 19 snillingum. Hausttónleikar sveitarinnar verða fimmtudagskvöldið 29. nóv. og hefjast þeir kl 20:00. Efnisskráin er ekki af verri endanum og munu hljóma lög eftir t.d. þessa meistara: Metallica, Rage against the machine, Ozzy Osbourne, Weather report, Boston, Adele og fleiri og fleiri.