Grundarfjarðarbær auglýsir starf þjónustufulltrúa á skrifstofu bæjarins laust til umsóknar.
Þjónustufulltrúi annast öll almenn skrifstofustörf, svo sem móttöku og afgreiðslu erinda, símsvörun, ljósritun, innskráningu reikninga, aðstoð við viðhald á heimasíðu sveitarfélagsins, aðstoð og upplýsingagjöf til íbúa og annarra, meðferð fundagagna og aðstoð við undirbúning funda. Vinnutími er á opnunartíma skrifstofunnar, þ.e. mánudaga til fimmtudaga kl. 09.30 - 15.30 og föstudaga kl. 09.30 - 14.00.