Stökuseiður nefndist skemmtun sem haldin var 6. nóvember sl. á menningarhátíð Grundfirðinga, Rökkurdögum. Þá heimsóttu okkur góðir gestir, hagyrðingar víða af landinu, og seiddu fram margar góðar stökur. Þessar um Kirkjufellið voru kveðnar af Guðríði B. Helgadóttur úr Blöndudalnum, sem er 83 ára gömul.
Krýnd af sólar eldi og ís
öll þín dulmögn skína.
Kirkjufell! Þér krýp og kýs
kveðju í lotning sína.