10:00 Dorgveiði á Hátíðarsvæði í boði Arion banka.
11:00 Öllum krökkum boðið að prufa tól og tæki hjá fimleikahópi Gerplu. Hópurinn setur upp áhöld á túninu við Samkomuhúsið. Allir velkomnir í heimsókn til þeirra í boði Ragnars og Ásgeirs.
11:00 Eyþór Björnsson með myndasýningu og sögur frá ferðum sínum til Sýrlands, Líbanon og Palestínu í Sögumiðstöðinni. Eyþór var í vetur með þessar sýningar og voru þær stórskemmtilegar.
12:00 Fiskisúpa Lionsklúbbs Grundarfjarðar á Hátíðarsvæði – Það má enginn missa af þessari frábæru súpu.12:00 Markaður á hátíðarsvæðinu opnar – Grundarport markaður í Risatjaldinu, töff handverk, nuddpúðar og ýmislegt annað sniðugt í Grundarporti.Kvenfélagið verður með kakó, kaffi, vöfflur og skúffukökur til sölu í Risatjaldinu Alvöru kaffihúsastemning.
13:00 Fjölskyldudagskrá á Hátíðarsvæðinu í boði Soffaníasar Cecilssonar
- Lalli Töframaður kynnir og sýnir listir sínar
- Menningar og Tómstundanefnd afhendir menningarverðlaunin Helgrindur
- Friðrik Dór syngur
- Grundfirsku strákarnir Aron, Bergur, Benni og Emil leika nokkur lög
- Hvanndalsbræður skemmta allri fjölskyldunni
- Afhending Vitans, menningarverðlauna Eyrbyggja Hollvinasamtaka Grundarfjarðar
- Dansnemendur Auðar B. taka sporið - Auður hefur verið með námskeið alla vikuna og nú sýna krakkarnir okkar afraksturinn
- Krakkar af námskeiðinu Sköpun og skemmtun koma fram
- Evrópumeistarar Gerplu stíga á stokk og stökkva jafnvel líka
14:00 Skemmtisigling um fjörðinn - Láki Tours siglir með farþega í skoðunarferð - fuglar, hvalir og jafnvel sjóstangveiði. Það þarf að bóka ferðina. Bókanir á Hótel Framnesi.
14:00 Franskir fiskimenn og fólkið í sveitinni – Sögur og spökúleringar í Sögumiðstöðinni. 1000 kr aðgangseyrir.
16:00 Söngtónleikar í Grundarfjarðarkirkju – Elmar Gilbertsson ásamt meðleikara flytja íslensk og erlend sönglög. Elmar er Snæfellingur sem hefur verið erlendis við nám og störf í söng og komið fram víða í óperuhúsum. Eitthvað sem tónlistarunnendur mega ekki láta fram hjá sér fara. 1.500 kr. Aðgangseyrir.
16:00 Stuttmyndin Kría eftir Dögg Mósesdóttur sýnd í Sögumiðstöðinni. Dögg er forsprakki kvikmyndahátíðarinnar Northern Wave sem haldin er ár hvert í Grundarfirði. Kría var frumsýnd fyrir stuttu í Bíó Paradís og nú gefst hátíðargestum tækifæri á að sjá hana. Kría var tekin upp í kringum Grundarfjarðardagana 2009 á Snæfellsnesi, Vestfjörðum og í Flatey. Í myndinni er m.a. sena frá hátíðarhöldunum þar sem Grundfirðingar sjást skemmta sér. Sigrún Aðalheiður ung grundfirsk stúlka fer með eitt aðalhlutverkið í myndinni. Myndin fjallar um sígauna á ferðalagi um Snæfellsnesið sem að gefur ungri stúlku á puttanum far og upp hefst mikið ævintýri. Myndin er 20 mínútur á lengd. aðeins 500 kr aðgangseyrir
17:00 Snæfellingurinn Bond í Sögumiðstöðinni. 1000 kr aðgangseyrir
20:00 Skrúðgöngur – Gulir hittast í þríhyrningi, Rauðir við Kaffi 59, Grænir við blokkina í Sæbóli og Bláir við kirkjuna
20:30 Hverfin skemmta sér á bryggjunni – Hvaða hverfi er með skemmiatriði ársins???
22:00 Bryggjuball með Draugabönum og Feik í boði Landsbankans
23:30 Stórdansleikur með Hvanndalsbræðrum í Risatjaldinu á Hátíðarsvæðinu.2500 kr aðgangseyrir – 18 ára aldurstakmark.