Fjöldi manns var mættur á stóru bryggjuna í Grundarfirði fyrir birtingu um kl. 10 á gamlársdagsmorgun þegar Hringur SH 153 nýtt togskip Guðmundar Runólfssonar hf. renndi upp að bryggjukantinum. Þar sem það var gamlársdagur þótti tilhlýðilegt að taka á móti því með flugeldasýningu.
Gunnar Kristjánsson fréttaritari Morgunblaðsins í Grundarfirði ritaði þessa frétt á mbl.is 31.12.2005.
Landfestar gerðar klárar við fyrstu komu í heimahöfn. Ljósm. Gunnar Kr.
Flugeldasala björgunarsveitarinnar Klakks verður opin í dag föstudag frá kl. 16:00 til kl. 21:00 og á morgun gamlársdag frá kl. 10:00 til 15:00.
Eru Grundfirðingar sem og aðrir hvattir til að kaupa flugelda frá björgunarsveitunum og styrkja þannig gott málefni og jafnframt hjálpa til við að byggja upp öfluga björgunarsveitir á landinu.
Áramótabrenna verður tendruð á Breiðinni við Rif að kvöldi 31. des. kl. 20:30. Björgunarsveitirnar í Snæfellsbæ sjá um stórkostlega flugeldasýningu.
Ef veður er vont er hægt að fara inn á vef Snæfellsbæjar til að athuga hvort brennunni hafi verið frestað.
Í dag verður hin bráðskemmtilega fjölskyldumynd um félagana Wallace og Gromit sýnd í Ólafsvíkurbíói (Félagsheimilinu Klifi). Sýningin hefst kl. 16:00. Aðgangseyrir er kr. 600.-
Íbúum í Grundarfirði fjölgaði um 36 einstaklinga frá 1. desember 2004 til 1. desember 2005. Fjöldi Grundfirðinga er því kominn í 974. Þetta er tæp 4% fjölgun á einu ári.
Fjölgun á vesturlandinu öllu var rétt rúmlega 3% en fjölgun á landinu öllu rétt rúm 2%.
Opið milli hátíðanna nema á annan í jólum.
Við óskum viðskiptavinum bókasafnsins og Grundfirðingum öllum gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýju ári og þökkum fyrir góð samskipti.
Sunna, Salbjörg og Guðbjörg Hr.
Jólabók að láni á bókasafninu
Húsnæðisnefnd minnir á að á morgun er síðasti dagur til að sækja um íbúðina að Sæbóli 44a.
Umsóknum þarf að skila á bæjarskrifstofuna á eyðublöðum sem þar fást. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Skrifstofustjóri
Jólatónfundur Tónlistarskóla Grundarfjarðar var haldinn fimmtudaginn 15. des sl. í félagsmiðstöðinni Eden. Nemendur fluttu fjölbreytt efni sem þeir hafa æft undanfarið. Notaleg stemming var í Eden og var gestum boðið upp á heitt súkkulaði og smákökur.
Ungir og efnilegir tónlistarmenn í Grundarfirði