Á fundi hafnarstjórnar Grundarfjarðarhafnar sem haldinn var í morgun, var m.a. rætt um undirbúning vegna komu skemmtiferðaskipa í sumar, en 13 skip hafa bókað komur í sumar. Í fyrra komu 8 skip til Grundarfjarðar. Hafnarstjórn telur aukninguna
Grundarfjarðarbær óskar eftir sex starfsmönnum til eftirtalinna sumarstarfa í áhaldahúsi:
Starfsmenn í sláttugengi og til almennra starfa. Viðkomandi þurfa einnig að geta tekið að sér flokksstjórn í vinnuskóla.
Umsækjendur skulu vera 17 ára og eldri.
Garðaúrgangsgámurinn er mættur.
Er staðsettur við gámastöðina við Ártún 6.
Vinsamlegast athugið að gámurinn er eingöngu ætlaður undir garðaúrgang.
Verkstjóri
Þann 24. mars s.l var opnaður ljósmyndavefur Bæringsstofu. Síðan þá hafa margir unað lengi við skoðun mynda. Nú þegar eru komnar yfir 100 ábendingar um efni myndanna og tilurð. Þessi virkni skoðara er mjög góð og og leggur grunn að gagnlegum upplýsingum sem nýtast mun safninu í framtíðinni. Fólk er eindregið hvatt til að senda inn upplýsingar jafnvel þó það þekki ekki alla sem á myndunum eru. Þar sem upplýsingar skortir er óhætt að setja ???. Innsendar upplýsingar eru yfirfarnar áður en þær birtast á vefnum.
Kærar þakkir fyrir frábærar móttökur.
Meðfylgjandi tölvupóstur kom fyrir stuttu á bæjarskrifstofuna og er nokkuð sérstakur. Við lá að hann yrði hinum miskunnarlausa "delete" takka að bráð en var bjargað á síðustu stundu.
Leikskólinn Sólvellir fékk úthlutað 250 þúsund úr þróunarsjóð leikskóla. Verkefnið sem Leikskólinn sótti styrk um heitir: Ég og leikskólinn minn - ferlimöppur til að skapa markvisst upplýsingaflæði milli skóla og heimilis.