Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015.
Aðveitustöð – Aðalskipulagsbreyting
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt á fundi 20. mars 2015 að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015 samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Meginmarkmið aðalskipulagsbreytingarinnar er að bæta afhendingaröryggi raforku á svæðinu með færslu tengivirkis í aðveitustöð og lagningu jarðstrengja, auk þess að færa aðveitustöðina fjær íbúðarbyggð. Markmiðið er einnig að breytingin valdi sem minnstri röskun á umhverfinu til lengri og skemmri tíma.
Aðalskipulagsbreytingin verður aðgengileg á vef Grundarfjarðar, www.grundarfjordur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Borgarbraut 16 á skrifstofutíma frá 10-14 frá 29. apríl 2015 til 11. júní 2015 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér aðalskipulagsbreytinguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri, skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður eða á netfangið bygg@grundarfjordur.is í síðasta lagi 11. júní 2015.
Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Grundarfirði.
Aðalskipulagsbreytingu/tillögu er hægt að nálgast hér.
Aðalskipulagsbreytingu/greinagerð er hægt að nálgast hér.