Frétt af vef Skessuhorns 19.06.2009
Klippt á borða og laugin vígð.Meðal viðburða á þjóðhátíð í Grundarfirði á þjóðhátíðardaginn var vígsla nýrrar sundlaugar, sem reist var á grunni þeirrar gömlu sem tekin var í notkun árið 1976. Nýja sundlaugin er úr sömu efnum og sú gamla, en fullkomnari að því leyti að við bakka hennar er svokallaður öldubrjótur, þar sem vatnið rennur áfram yfir í rennur og þaðan í hreinsikerfi laugarinnar. Sundlaugin er byggð á trégrind og laugarkerið er eins og í gömlu lauginni plastdúkur frá Seglagerðinni. Stærðin er sú sama og áður 8x16,66 metrar. Ekkert ásættanlegt tilboð barst í framkvæmdirnar í vor og var því ákveðið að starfsmenn bæjarins undir stjórn Ágústs Jónssonar ráðsmanns sæju um verkið og fengju til aðstoðar iðnaðarmenn á staðnum. Gamla laugin var rifin í byrjun maí og smíði við endurnýjunina hófst síðan 14. maí.