Lúðrasveit tónlistarskólans heldur tónleika þann 12. mars n.k. í sal Fjölbrautaskóla Snæfellinga kl. 20:00. Ekki er ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur, því leikin verður tónlist úr kvikmyndaheiminum. Tónleikarnir kallast "Velkomin í bíó". Mikið verður um dýrðir, t.a.m. verða sýnd brot úr kvikmyndunum sem tengdar eru hverju lagi. Á boðstólnum verða lög úr sígildum myndum sem allir þekkja, s.s. Star Wars, Indiana Jones, Lord of the Rings, Austin Powers, Batman, James Bond og fleiri og fleiri.