Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir eftir starfsfólki í heimaþjónustu í Grundarfirði
· Um er að ræða ýmist heil eða hálf stöðugildi félagsliða í heimaþjónustu sveitarfélaganna.
· Heilsársstörf; daglegur vinnutími 9 – 17 eða 8-16
· Góð starfsaðstaða- aðbúnaður og kjör í boði
· Upphaf starfs er 3. jan 2014
· Laun skv. kjarasamningi sveitarfélaganna og SDS
Umsóknir er tilgreina menntun og fyrri störf ásamt sakavottorði berist skrifstofu FSS, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ eða á netföngin berghildur@fssf.is
Upplýsingar veitir Berghildur á skrifstofutíma, í tölvupósti ellegar í síma 430 7800
Umsóknarfrestur er til 20. desember
Forstöðumaður