S.l. miðvikudag var haldinn stofnfundur Garðyrkjufélags Snæfellsness á Ráðhúsloftinu í Stykkishólmi. Formaður var kosinn Anna Melsteð, meðstjórnendur Guðrún Hauksdóttir, Magðalena Hinriksdóttir, Kolbrún Jónsdóttir og Sesselja Pálsdóttir. Vilhjálmur Lúðvíksson formaður Garðyrkjufélags Íslands kynnti félagið og að því loknu kom Jón Guðmundsson garðyrkjumaður og fræddi fundargesti ítarlega um það hvernig koma mætti ávaxtatrjám til að vaxa og bera ávexti utandyra.