Bæjarhátíð Grundfirðinga, "Á góðri stund í Grundarfirði" verður haldin í 9. sinn dagana 28.-30. júlí nk. Uppsetning dagskrárliða verður að mestu með hefðbundnu sniði, þó alltaf séu einhverjar breytingar milli ára. Mörgum finnst að hátíðin byrji á fimmtudeginum, en þá skreyta allir hverfin sín í gulum, rauðum, grænum eða bláum litum.