Bæjarstjóri Paimpol, Jean-Yves de Chaisemartin,  heimsótti Grundarfjörð í tilefni 10 ára afmælis vinasambandsins og sinfóníutónleikanna sem halndir voru hér síðastliðinn sunnudag. Í för með honum voru starfsmenn bæjarksrifstofu Paimpol ásamt Anne Smith sem er opinber listamaður franska sjóhersins. Gestirnir höfðu í nógu að snúast og á dagskránni var meðal annars heimsókn í Eldfjallasafnið þar sem Haraldur eldjfallafræðingur hitti gestina og svaraði ótal spurningum, þá var farið og bragðað á hákarli á Bjarnarhöfn ásamt ógleymanlegri hringferð um Snæfellsnesið.

 

 

Í heimsókninni var borgarstjóranum gefinn eftirmynd af fallbyssunni sem fannst við Kirkjufellið og stendur nú í Sögumiðstöð. Það var Þorgrímur Kolbeinsson sem smíðaði þennan glæsilega grip. Á fundi á mánudaginn voru rædd ýmis framtíðarverkefni og mikill vilji hjá bæði Grundarfjarðarbæ og Paimpol að efla samskipti bæjanna á sem mestan hátt.