- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Grundarfjarðarbær auglýsir starf skólastjóra Leikskólans Sólvalla laust til umsóknar.
Við leitum að metnaðarfullum og drífandi stjórnanda sem er tilbúinn að leiða virka skólaþróun og faglegt starf með áherslu á framþróun, lausnaleit og styrkingu leikskólastigsins í samvinnu við skóla- og nærsamfélagið.
Á Leikskólanum Sólvöllum eru milli 45-60 börn á aldrinum 12 mánaða til 4 ára. Sérstök fimm ára leikskóladeild er rekin undir Grunnskóla Grundarfjarðar og er samstarf gott á milli skólanna.
Spennandi skólaþróun
Leikskólinn er í samstarfi við Ásgarð skólaráðgjöf um uppbyggingu innra starfs, stjórnun og mótun skólanámskrár og hefur leikskólastjóri góðan aðgang að styrkri ráðgjöf og handleiðslu frá ráðgjöfum Ásgarðs.
Framundan er ennfremur endurskoðun á skólastefnu sveitarfélagsins. Verkefnið felst í að greina núverandi stöðu á gildandi skólastefnu, móta framtíðarsýn og innleiðingaráætlun með skýrum viðmiðum um gæði skólastarfs. Samhliða endurskoðun verður gerð þriggja ára innleiðingaráætlun og verkefnum forgangsraðað. Hlutverk leikskólastjóra er mikilvægt í þessari vinnu og gefst hér tækifæri til að taka þátt í að auka gæði skólastarfs enn frekar í metnaðarfullu skólaumhverfi.
Starfssvið
Leikskólastjóri hefur faglega forystu um kennslu og þróun skólastarfs, stýrir og ber ábyrgð á daglegum rekstri, mannauð og starfsemi leikskólans. Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu bæjarins.
Menntunar- og hæfniskröfur
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags stjórnenda leikskóla. Umsækjendur þurfa að hafa hreint sakavottorð skv. ákvæðum laga sem um starfið gilda.
Nánari upplýsingar veitir Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri, í síma 430 8500 eða með því að senda fyrirspurnir á bjorg@grundarfjordur.is. Umsóknir sendist á framangreint netfang.
Umsóknum um starfið skal fylgja greinargott yfirlit um menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað sem umsækjandi telur máli skipta.
Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2022.
Ráðið er í starfið frá 1. janúar nk. eða skv. samkomulagi. Með vísan til laga um jafnan rétt kynjanna eru öll kyn hvött til að sækja um starfið.