Starfið er auglýst á alfred.is og á vef VinnVinn sem aðstoðar við ráðninguna.

Grundarfjarðarbær leitar að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi til að stýra fjölbreyttum verkefnum á sviði tækni- og byggingarmála. Framundan eru mörg spennandi verkefni. Um er að ræða fjölbreytt starf sem býður upp á einstakt tækifæri í lifandi bæjarfélagi í mikilli þróun.

Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á tækni-, umhverfis- og byggingarmálum. Viðkomandi þarf að geta leitt faglega vinnu við framkvæmdir og viðhald mannvirkja bæjarins, sem og hafa frumkvæði og aðkomu að nýjum, óhefðbundnari verkefnum, t.d. í orkuskiptum.

Æskilegt er að viðkomandi geti einnig sinnt lögbundnu hlutverki byggingarfulltrúa eða sé reiðubúinn að afla sér viðeigandi réttinda innan umsamins tíma.

Starfsaðstaða er í Ráðhúsi Grundarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2025.

Athugið að Grundarfjarðarbær leitar nú einnig að aðstoðarleikskólastjóra, sjá auglýsingu, og að íþrótta- og tómstundafulltrúa, sjá auglýsingu.

Starfssvið og helstu verkefni:

  • Yfirumsjón og eftirlit með verklegum framkvæmdum bæjarins, bæði nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum, s.s. við endurbætur fasteigna, gatna- og stígagerð, fráveitumál og blágrænar lausnir.
  • Umsjón með orkuskiptaverkefnum á næstu árum, þar sem bærinn leitar nýrra leiða til að spara orku við rafkyndingu mannvirkja.
  • Gerð verk- og kostnaðaráætlana, umsjón með verðkönnunum og útboðsmálum, samningum við verktaka og hönnuði.
  • Æskilegt er að viðkomandi geti sinnt lögbundnu hlutverki byggingarfulltrúa skv. viðeigandi löggjöf og borið ábyrgð á daglegri starfsemi í byggingarmálum, þ. á m. ábyrgð á afgreiðslufundum byggingarfulltrúa, skráningu fasteigna og undirbúningi byggingarmála fyrir fagnefnd bæjarins, annað hvort við upphaf starfs eða með öflun réttinda innan ákveðins tíma.
  • Samskipti og upplýsingagjöf um verklegar framkvæmdir, orkumál og byggingarmál.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. á sviði byggingarmála eða tæknifræði.
  • Farsæl reynsla af sambærilegum verkefnum.
  • Þekking á góðum stjórnsýsluháttum, lögum og reglum er varða starfssviðið er kostur.
  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur.
  • Rík leiðtoga- og samskiptahæfni.
  • Frumkvæði, fagmennska, skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun.
  • Framúrskarandi tölvukunnátta sem nýtist í starfi,  í starfi, s.s. landupplýsingakerfi, teikniforrit, o.fl.
  • Góð færni í íslensku, í  töluðu og rituðu máli, og góð enskukunnátta.

---

Grundarfjörður er vaxandi þjónustukjarni miðsvæðis á Snæfellsnesi. Íbúar eru um 900. Grundfirðingar búa að einstakri og fjölskrúðugri náttúru og góðu mannlífi. Samfélagið er fjölskylduvænt og umhverfisvænt með blómstrandi menningarstarfsemi. Alla helstu grunnþjónustu er hér að finna, m.a. leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og framhaldsskóla, öflugt íþróttastarf, heilsugæslu, bókasafn, verslanir, kaffihús, veitingastaði og fleira. Börn eru tekin inn í Leikskólann Sólvelli við 12 mánaða aldur og það er enginn biðlisti hjá okkur. Um 2ja klst. akstur er til Reykjavíkur. Að Grundargötu 30 er samvinnurými og skrifstofuaðstaða fyrir störf án staðsetningar. Sveitarfélögin á Snæfellsnesi eiga með sér öflugt samstarf um umhverfismál og hafa hlotið EarthCheck umhverfisvottun svæðisins 14 sinnum.

Í Grundarfirði stendur yfir metnaðarfull og spennandi þróun og uppbygging íbúða og atvinnustarfsemi, göngustíga og útivistarsvæða á grunni umhverfisvænnar stefnu í Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019 - 2039.

Unnið er að þróun veitukerfa með áherslu á blágræna innviði, orkuöflun og orkuskiptum með varmadælutækni, upptöku fasteignaumsjónarkerfis og byggingareftirlitskerfa o.fl. 

 ---

Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi, hvoru tveggja á íslensku. Þar skal gera grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við hæfniskröfurnar sem tilgreindar eru í auglýsingunni. Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfa eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina.   

Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna.

Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Sótt er um starfið á vef VinnVinn. Umsjón með ráðningu hafa Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og Garðar Óli Ágústsson (gardar@vinnvinn.is).

Ítarefni:

Vefur Grundarfjarðarbæjar