Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull boðar til opins fundar um umgengni og umferð á Snæfellsjökli. Fundurinn verður haldinn mánudaginn 7. mars kl. 20 í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík.

 

Skoðanir eru skiptar um umferð á Snæfellsjökli en fram til þessa hefur henni ekki verið stýrt á nokkurn hátt. Boðað er til ofangreinds fundar til að fá fram ólík sjónarmið þeirra sem láta sig málið varða en nauðsynlegt er að ná sátt um það.

 

Á fundinum verður saga málsins rakin, fulltrúar mismunandi hópa kynna sjónarmið sín með stuttum erindum og almennar umræður verða um málið. Fundurinn er öllum opinn og eru íbúar á Snæfellsnesi sérstaklega hvattir til að mæta og láta skoðanir sína í ljós. 

Dagskrá fundarins