- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Jeratún ehf. óskar hér með eftir tilboðum í verkið;
Fjölbrautaskóli Snæfellinga – Lagnir í lóð og fleira 2006.
Um er að ræða lagnir í lóð og fleira ásamt tilheyrandi jarðvinnu á lóð Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði.
Verklok eru 10. júlí 2006.
Helstu magntölur eru sem hér segir:
Brunnar Ø 1000 mm 4 stk
Niðurfallsbrunnar 16 stk
Göturennur 31 lm
Snjóbræðslulagnir 500 m2
150 mm rör 260 lm
Mótasmíði 80 m2
Steypa 8 m3
Jarðvinna vegna lagna og veggja 350 lm
Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofu Grundarfjarðar, ráðhúsinu Stykkishólmi og á bæjarskrifstofu Snæfellsbæjar, á skrifstofutíma, frá og með föstudeginum 19. maí n.k.
Tilboðum skal skilað á bæjarskrifstofuna Grundarfirði fyrir kl. 11.00 föstudaginn 26. maí 2006, og verða opnuð á þeim tíma, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Grundarfirði 16.05.2006
f.h. Jeratúns,
Jökull Helgason
skipulags- og byggingarfulltrúi Grundarfirði