Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 25. apríl 2009. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin.

Í umdæmi sýslumanns Snæfellinga fer hún fram á eftirtöldum stöðum:

Skrifstofu sýslumanns, Hrannarstíg 2 í Grundarfirði, virka daga kl.11 til 15.

Skrifstofu sýslumanns, Bankastræti 1A í Ólafsvík, virka daga kl.11 til 15.

Skrifstofu hreppsstjóra, Þverá í Eyja – og Miklaholtshreppi, virka daga kl.12 til 13.

Skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2 í Stykkishólmi, virka daga kl.10 til 15.30 en þar verður einnig opið um helgar frá kl. 12 til 13 eftir 1. apríl.

Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi kjörstjóra. Lokað verður á skírdag, föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum. Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.

 

 

                                                                      Stykkishólmi, 18. mars 2009.

                                                                                  Sýslumaður Snæfellinga.