Skipulags- og umhverfisnefnd ásamt bæjarstjórn bjóða til árlegs umhverfisrölts með íbúum og öðrum áhugasömum. 
Sú breyting er gerð í ár, að fyrra kvöldið verður opið hús í Sögumiðstöðinni þar sem boðið er í umhverfisspjall, kl. 19:30 - 21:00.
Farið verður yfir helstu umhverfisframkvæmdir bæjarins í ár, auk þess að ræða það sem hvílir á fólki varðandi umhverfið okkar.
Umhverfisröltið sjálft verður svo farið þriðjudagskvöldið 2. júlí kl. 19:30 og lagt af stað frá aðalinngangi samkomuhússins. Ekki verður þó rölt skipulega í öll hverfi bæjarins, heldur farið til að skoða þau atriði sem íbúar óska sérstaklega eftir. 
 
Bæjarbúar – mætum og látum okkur varða um umhverfi okkar.
Tökum þátt!
 
Skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar