- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Bæjarstjórn Grundarfjarðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi áfangastaðar við Kolgrafafjörð, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillaga á vinnslustigi - Greinargerð
Tillaga á vinnslustigi - Uppdráttur
Skipulagssvæðið er við vesturhluta Kolgrafafjarðarbrúar og er um 3,3 ha að stærð.
Tillagan mun liggja frammi á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar frá 17. mars til og með 3. apríl 2018. Tillagan verður einnig aðgengileg á vef Grundarfjarðarbæjar.
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er þannig gefinn kostur á að kynna sér tillöguna og gera athugasemd við hana. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skrifstofu Grundarfjarðarbæjar í síðasta lagi þann 3. apríl 2018 á netfangið bygg@grundarfjordur.is eða í bréfpósti á eftirfarandi heimilisfang:
Grundarfjarðarbær
Borgarbraut 16
350 Grundarfjörður
Skipulags- og byggingarfulltrúi Grundarfjarðar