Sumarnámskeið Grundarfjarðarbæjar, síðari hluti, hefst eftir verslunarmannahelgi, þriðjudaginn 6. ágúst.

Líkt og síðasta sumar verður námskeiðið nú hálfur dagur í stað heils.

Námskeiðið: 
  • er fyrir börn fædd 2015-2018
  • stendur yfir dagana 6.-9. og 12.-16. ágúst  
  • er hálfur dagur, eða kl. 9:00-12:00 

Á námskeiðunum verður áhersla lögð á náttúru í nærumhverfi Grundarfjarðar, útileiki og skapandi vinnu og verður m.a. farið í gönguferðir, fjöruferð, fjallgöngu, dorgveiði og sund.

Kristín Halla Haraldsdóttir hefur umsjón með námskeiðinu. Kristínu þekkja flestir, úr íþrótta- og félagsstarfi til langs tíma. Kristín er með meistaragráðu í náttúrugreinum frá Háskóla Íslands og er að klára BS í náttúru- og umhverfisfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Kristínu til aðstoðar verða þær Elsa Lillý Hafþórsdóttir, sem hefur verið sumarstarfsmaður hjá Grundarfjarðarbæ sl. tvö sumur, Sólveig Stefanía Bjarnadóttir sem hefur verið til aðstoðar á sumarnámskeiðum áður og Fanney María Jónsdóttir. Hægt er að ná í þær gegnum netfangið sumarnamskeid@grundarfjordur.is

Námskeiðin byrja og enda í eða við íþróttahúsið. Krakkarnir eiga að mæta með hollt og gott nesti fyrir kaffitíma, fyrir hádegi og hafa með sér vatnsbrúsa, sundföt (tiltekna daga) og léttan bakpoka. Ekki er leyfilegt að koma með gos, orkudrykki og sælgæti. 

Mikilvægt er að börnin séu alltaf klædd eftir veðri.

Verð á námskeiði, síðari hluta (kl. 9-12) er 7000 kr. fyrir eina viku.

Veittur er 30% systkinaafsláttur fyrir annað barn og 70% af verði fyrir þriðja barn.

Sótt er um í gegnum vef Grundarfjarðarbæjar, sjá hlekk hér. Sækja þarf um fyrir kl. 13 mánudaginn 5. ágúst.

Frekari spurningum um fyrirkomulag má beina til Óla, íþrótta- og tómstundafulltrúa Grundarfjarðarbæjar, í netfangið ithrott@grundarfjordur.is