Lestraráskorun og ofurhetjuspil á Bókasafninu

Í sumar hvetjum við alla krakka til að setja á sig ofurhetjuskikkjuna og taka þátt í Sumarlestri almenningsbókasafnanna. Lestur veitir ofurkraft, því meira sem þú lest, því meira lærir þú og skilur. 

Þú nálgast sumarlestursheftið hjá okkur á Bókasafni Grundarfjarðar. Það inniheldur sex lestraráskoranir og skemmtilegt ofurhetjuspil. Lestrarákorunin er að ná að lesa samanlagt í ákveðinn fjölda mínútna sem lestrarhetjan setur sér í samráði við foreldri eða annan fullorðinn. Hvað ætlar þú að lesa margar mínútur á einni viku? Í hvert sinn sem áskorun lýkur kvittar foreldri/forráðamaður og lestrarhetjan heimsækir bókasafnið með staðfestinguna til þess að fá límmiða til að líma á spilaborðið.

Lestrarhetjan til bjargar í Skarkalabæ

Spilaborðið er mynd af Skarkalabæ. Í Skarkalabæ er allt í rugli! Það þarf að bjarga fólki og furðuverum úr bráðri hættu og það strax! Þú getur verið lestrarhetjan sem bjargar deginum með aðal ofurkraftinum, orðaforðanum! Spilið er samvinnuspil þar sem spilarar hjálpast að við að bjarga fólki og furðuverum í vanda. Spilarar skiptast á að vera hetjan á meðan hinir giska á hverjum/hverju lestrarhetjan ætlar að bjarga á myndinni.

Með hverjum límmiða sjáum við enn betur hvað það er sem er í gangi í Skarkalabæ. Þannig stækkar spilið með hverri lestraráskorun sem lestrarhetjan klárar í sumar.

Myndirnar eru eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og borðspilið er hannað af Steingerði Lóu Gunnarsdóttur. Hugmyndavinnan er unnin í samstarfi við vinnuhóp sem er skipaður af barnabókavörðum á almenningsbókasöfnum um allt land og er efnið gefið út af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. 

Verðlaunapottur

Við fögnum frábærum árangri með veglegum verðlaunapotti fyrir alla krakka sem skila inn fullbúnu korti til okkar til 20.ágúst. . Þau sem hafa safnað öllum sex límmiðum geta skilað inn kortinu í sumarlestrarpottinn til okkar á bókasafninu. Verður þú heppni þátttakandinn sem verður dreginn út og færð vinning?

Ekki örvænta þó þú náir ekki að safna öllum límmiðunum fyrir skólabyrjun. Það verður hægt að fá límmiða á veggspjaldið á meðan birgðir endast.

Gleðilegt ofurlestrar-sumar!