- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Þjónusturáð Vesturlands auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna náms og verkfæra- eða tækjakaupa á grundvelli 27. greinar í lögum um málefni fatlaðs fólks. Styrkirnir eru ætlaðir fötluðu fólki sem á lögheimili á Vesturlandi, er með varanlega örorku og hefur náð 18 ára aldri.
Umsóknir skulu berast til félagsþjónustu Akraneskaupstaðar, félagsþjónustu Borgarbyggðar eða Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga fyrir 21. mars n.k.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar er að finna á heimasíðum viðkomandi sveitarfélaga.
Reglur um styrki til náms-, verkfæra- og tækjakaupa