Grundarfjarðarbær auglýsingar starf skipulags- og byggingafulltrúa laust til umsóknar. Um er að ræða mjög spennandi starf í áhugaverðu umhverfi. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að þróa starfið á traustum grunni. Skipulags- og byggingafulltrúi ber m.a. ábyrgð á skráningu mannvirkja, úttektum, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa.

Helstu verkefni:

  • Framkvæmd skipulags- og byggingamála
  • Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar, úttektir og útreikningar
  • Undirbúningur og eftirfylgni funda skipulags- og umhverfisnefndar
  • Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar, sem vinna að verkefnum á sviði byggingamála
  • Yfirumsjón framkvæmda og eignasýslu í sveitarfélaginu
  • Önnur verkefni

 

Hæfniskröfur:

  • Menntun og löggilding, skv. ákvæðum 8. og 25. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 og 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er nauðsynleg
  • Þekking og reynsla af úttektum og mælingum
  • Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum og byggingareglugerð
  • Reynsla af stjórnun er æskileg
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Góð almenn tölvukunnátta

 

Umsókn skal fylgja greinargóð starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

 

Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2016.

 

Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á netfangið thorsteinn@grundarfjordur.is

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Steinsson, bæjarstjóri í síma 430 8500 eða í tölvupósti á netfangið thorsteinn@grundarfjordur.is