- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Grundarfjarðarbær auglýsir starf skipulags- og byggingafulltrúa laust til umsóknar. Um er að ræða mjög spennandi starf í áhugaverðu umhverfi. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að þróa starfið á traustum grunni. Skipulags- og byggingafulltrúi ber m.a. ábyrgð á skráningu mannvirkja, úttektum, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa.
Helstu verkefni:
Ø Framkvæmd skipulags- og byggingamála
Ø Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar, úttektir og útreikningar
Ø Undirbúningur og eftirfylgni funda skipulags- og umhverfisnefndar
Ø Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar, sem vinna að verkefnum á sviði byggingamála
Ø Yfirumsjón framkvæmda og eignasýslu í sveitarfélaginu
Ø Önnur verkefni
Hæfniskröfur:
Ø Menntun og löggilding, skv. ákvæðum 8. og 25. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 og 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er nauðsynleg
Ø Þekking og reynsla af úttektum og mælingum
Ø Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum og byggingareglugerð
Ø Reynsla af stjórnun er æskileg
Ø Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Ø Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
Ø Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Ø Góð almenn tölvukunnátta
Umsókn skal fylgja greinargóð starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 2018.
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á netfangið thorsteinn@grundarfjordur.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Steinsson, bæjarstjóri í síma 430 8500 eða í tölvupósti á netfangið thorsteinn@grundarfjordur.is