- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Skemmtiferðaskipið Princess Danae kom til Grundarfjarðar eftir hádegi í dag. Skipið er um 162 metra langt og um 10 þúsund tonn að stærð. Um 500 farþegar eru með skipinu, flestir franskir og munu þeir fara í skoðunarferð um Snæfellsnes. Leið skipsins liggur um norðurhöf; Noreg, Ísland, Grænland og Færeyjar.