|
Skemmtiferðaskip í Grundarfjarðarhöfn sumarið 2004 |
Komur skemmtiferðaskipa til hafnar í Grundarfirði voru alls 13 í sumar. Skipin voru 6 talsins. Columbus og Ocean Monarch komu þrisvar, Funchal og Hanseatic komu tvisvar og Delphin og Adriana komu einu sinni. Með skipunum voru alls 4540 farþegar. Áhöfn skipanna er í kringum 200 manns hverju sinni, eftir stærð þeirra. 8 skip hafa nú þegar bókað komu sína fyrir næsta sumar.