- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Leitað er eftir sjúkraþjálfara til að taka að sér sjálfstæðan rekstur sjúkraþjálfunar í húsnæði heilsugæslustöðvar HVE í Grundarfirði í samstarfi við stjórnendur stofnunarinnar. Á staðnum er nýlega innréttuð vinnuaðstaða fyrir fyrirhugaða þjónustu sjúkraþjálfara.
Fjölbreyttir möguleikar eru á Snæfellsnesi t.d. í tengslum við sjúkraþjálfara HVE í Stykkishólmi, Dvalarheimilið Fellaskjól í Grundarfirði og starfsdeild Fjölbrautaskóla Snæfellsness í Grundarfirði.
Nánari upplýsingar veitir Ásthildur E. Erlingsdóttir, áhugasömum er bent á að hafa samband við hana í síma 432-1350 eða á netfangið asthildur.erlingsdottir@hve.is.
Umsóknir sem greinir frá menntun, reynslu og fyrri störfum eða starfsemi, ásamt staðfestingu prófskírteina sendist á netfangið asthildur.erlingsdottir@hve.is
Umsóknarfrestur er til 31. Maí 2017. Öllum umsóknum verður svarað.