Vör - Sjávarrannsóknarsetur við Breiðafjörð var útnefnt Frumkvöðull ársins á Vesturlandi fyrir árið 2007 við athöfn í Landnámssetrinu í Borgarnesi í dag. Þetta er í þriðja skipti sem útnefningin fer fram en valið var úr tilnefningum sem bárust. Það eru Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi sem standa að henni.
Sjávarrannsóknasetrið var stofnað þann 12. maí árið 2006 og er til húsa í Ólafsvík. Vör er sjálfseignarstofnun og standa 22 aðilar að baki stofnuninni. Eitt meginmarkmið hennar er að rannsaka lífríki Breiðafjarðar með það að leiðarljósi að auka þekkingu á vistkerfinu og nýtingamöguleikum auðlinda svæðisins. Það var Erla Björk Örnólfsdóttir sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd Varar.
Frétt á vef Skessuhorns
Alls hlutu 19 einstaklingar, hópar, stofnanir og fyrirtæki tilnefningar, en það voru:
Geirabakarí í Borgarnesi fyrir farsælt uppbyggingarstarf undanfarin ár.
Sólarorka ehf. í Borgarnesi fyrir uppbyggingu Gamla mjólkursamlagsins og Vinakaffis.
Hótel Hamar í Borgarnesi fyrir brautryðjendastarf í ferðaþjónustu.
Theodóra Þorsteinsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar fyrir dugmikið starf við óperuuppfærslu.
Saga Medica ehf. fyrir þróun lækningalyfja úr íslenskum jurtum.
Fæðingadeild SHA fyrir endurbætur og starfsemi fæðinga- og sængurkvennadeildar.
Omnis ehf. fyrir athyglisverða uppbyggingu sérhæfðrar tölvuþjónustu m.a. í Borgarnesi og á Akranesi.
Gísli Einarsson, fréttamaður fyrir að vera boðberi frétta af Vesturlandi.
Ragnheiður Þorgrímsdóttir á Kúludalsá fyrir innleiðingu nýrra kennsluhátta með notkun hestsins.
Snæfrost ehf. í Grundarfirði fyrir uppbyggingu frystihótels.
Eyrbyggja – Sögumiðstöð í Grundarfirði fyrir sagnamiðstöðina.
Íbúar Stykkishólms fyrir átak í umhverfisvænum sorpmálum.
Roni Horn í Vatnasafninu fyrir uppbyggingu þess.
Íslenskur æðardúnn ehf. fyrir atvinnuuppbyggingu í Stykkishólmi.
Dögg Mósesdóttir í Grundarfirði fyrir kvikmyndahátíðina Northern Wave.
Magnús Þór Eggertsson bóndi í Ásgarði í Reykholtsdal fyrir leiðandi vinnu í kornrækt og ræktunarstarf.
Magnús Magnússon, útgefandi Skessuhorns fyrir að halda úti öflugri fréttaþjónustu af Vesturlandi.
Hlédís Sveinsdóttir fyrir nýjung í markaðssetningu sauðkindarinnar.
Sjávarrannsóknasetrið Vör fyrir öfluga uppbyggingu rannsóknamiðstöðvar.