- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Á fundi íþrótta- og tómstundanefndar í dag voru samþykkt eftirfarandi drög að reglum um kjör íþróttamanns Grundarfjarðar.
Íþróttafélögum verða send drögin til umfjöllunar og jafnframt geta lesendur heimasíðunnar sett ábendingar í reitinn hér að neðan.
Drög að reglum um kjör íþróttamanns Grundarfjarðarbæjar
1. grein
Íþróttafélögin í Grundarfirði skili til íþrótta- og tómstundanefndar rökstuddum tilnefningum til kjörs fyrir 10. nóvember ár hvert.
2. grein
Félögunum er heimilt að tilnefna einn einstakling fyrir hverja grein íþrótta sem stunduð er hjá viðkomandi félagi. Sá sem tilnefninguna hlýtur verður að hafa náð 12 ára aldri eða verði það á árinu samkvæmt vinnureglum ÍSÍ. Íþrótta- og tómstundanefnd er heimilt að bæta við tilnefningum ef ástæða þykir til.
3. grein
Íþróttamaður Grundarfjarðar verður að vera í íþróttafélagi skráðu í Grundarfirði.
4. grein
Aðal- og varamenn íþrótta- og tómstundanefndar kjósa íþróttamann Grundarfjarðar. Stig skulu gefin samkvæmt eftirfarandi töflu:
1. sæti 15 stig
2. sæti 12 stig
3. sæti 10 stig
4. sæti 8 stig
5. sæti 6 stig
Ef þannig skyldi vilja til að tveir íþróttamenn stæðu uppi jafnir með flest stig skal kosið að nýju á milli þeirra tveggja.
Boða skal sérstaklega til fundar þá sem tilnefningarnar eru kynntar og kosning fer fram.
Tilnefningunum skal skila á sérstöku eyðublaði sem nefndin úthlutar.
5. grein
Tilnefndir íþróttamenn hljóta sérstaka viðurkenningu en kjörinn íþróttamaður Grundarfjarðar hlýtur eignargrip ásamt farandbikar sem viðkomandi varðveitir í eitt ár.
6. grein
Afhending viðurkenninga og tilkynning á vali íþróttamanns Grundarfjarðar skal fara fram á aðventuhátíð Grundarfjarðar ár hvert.