- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Ráðið hefur verið í stöðu þjónustufulltrúa á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar. Kristín Pétursdóttir sem gegnt hefur þeirri stöðu undanfarið hefur tekið við starfi aðalbókara og ritara. Í starf þjónustufulltrúa hefur verið ráðin Arna Hildur Pétursdóttir og er hún boðin velkomin til starfa. Arna Hildur starfaði áður í útibúi Kaupþings í Grundarfirði sem gjaldkeri.