- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Á fundi bæjarráðs Grundarfjarðarbæjar þ. 22. desember sl. var samþykkt að ráða Matthildi S. Guðmundsdóttur í stöðu leikskólastjóra Leikskólans Sólvalla frá og með 1. janúar 2009. Matthildur hefur starfað við leikskólann í fjölda ára og er öllum foreldrum og nemendum leikskólans að góðu kunn. Matthildur hefur undanfarin ár starfað sem aðstoðarleikskólastjóri og hefur gegnt starfi leikskólastjóra á haustönninni 2008. Matthildur tekur við þessari stöðu af Sigríði Herdísi Pálsdóttur sem hefur verið í launalausu leyfi undanfarna mánuði, en hefur nú sagt stöðu sinni lausri. Matthildi er óskað til hamingju með nýja starfið.