- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Borið hefur á því að börn séu að búa sér til snjóhús eða leika sér inni í ruðningum/sköflum sem hafa myndast við götur og gatnamót. Þegar unnið er að því að hreinsa götur eru þessi svæði nýtt til að koma snjó af götunum.
Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að ræða við börn sín um hættuna sem getur fylgt því að gera snjóhús í snjóruðningum. Oft eru gamlir ruðningar færðir til eða mokað burtu. Ef börn eru að leika sér í sköflunum væri sniðugt að setja skóflu eða stórt prik efst í skaflinn svo að hægt sé að sjá að einhver sé þar.
Við viljum jafnframt biðja akandi vegfarendur að hafa gætur á þessu þegar þeir keyra um göturnar svo ekki verði slys og gangandi vegfarendur sem verða varir við börn í snjóhúsum að hafa þessa hættu á orði við börnin.
Stöndum saman í að gæta barnanna okkar og höfum gaman saman í snjónum.