Grundarfjarðarbær efnir á ný til ljósmyndasamkeppni árið 2013. Þetta er í fjórða sinn sem bærinn blæs til ljósmyndasamkeppni og hefur þótt takast vel til. Á þennan hátt hefur bærinn fengið nýjar myndir til birtingar og þátttakendur sínar myndir birtar.

Þema samkeppninnar í ár er Fjaran. Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka og á tímabilinu janúar til september. Samkeppnin stendur til 30. september 2013 og má hver þátttakandi senda inn að hámarki fimm myndir.

Verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu myndirnar. Fyrstu verðlaun eru 50.000 kr., önnur verðlaun 30.000 kr. og þriðju verðlaun 20.000 kr.

Tilgangur keppninnar er sá að Grundarfjarðarbær komi sér upp góðu safni mynda úr sveitarfélaginu til notkunar við kynningarstarf og annað sem viðkemur starfsemi bæjarins. Jafnframt að ýta undir áhugaljósmyndun meðal bæjarbúa.

 

Grundarfjarðarbær hvetur bæjarbúa til þátttöku. Ekki þarf dýrar vélar til að taka þátt heldur er það frekar hugmyndaflug, staðsetning, birta, myndefni og tímasetning sem ráða því hvernig til tekst þegar smellt er af mynd.

 

Reglur keppninnar

1.   Skil á myndum fer fram með því að senda myndirnar á

      netfangið  ljosmynd2013@gmail.com

2.   Skilafrestur á myndum er til miðnættis mánudaginn 30. september 2013.

3.   Ekki má birta myndir sem skilað hefur verið inn, hvorki á netinu,

      sýningum né fjölmiðlum fyrr en að lokinni verðlaunaafhendingu.

4.   Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu

      janúar til september.

5.   Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að nota myndirnar á vefsíðum sínum

      endurgjaldslaust.

6.   Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að prenta myndirnar og hafa til 

      sýnis, hvort sem er í húsnæði bæjarins eða annars staðar, 

      endurgjaldslaust.

7.   Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að birta myndirnar endurgjaldslaust.

8.   Skila verður myndum í .jpg formati.

9.   Skila má fleiri en einni mynd en að hámarki fimm myndum frá hverjum

       þátttakanda.

10.  Með því að senda inn mynd/ir í keppnina er þátttakandi að samþykkja

       reglur hennar.

 

Hér má sjá tíu bestu ljósmyndirnar úr keppninni árið 2011

Hér má sjá tíu bestu ljósmyndirnar úr keppninni árið 2012