Nú geta fasteignareigendur í Framsveit tengst ljósleiðaranum og er hér að finna leiðbeiningar um hvernig það getur gengið fyrir sig:
Á vef Mílu, www.mila.is, er hægt að sjá hverjir þjónustuveitendur eru
með því að skrifa inn nafn staðar og skoða hvernig tenging er möguleg fyrir viðkomand stað.
Almennt gildir að ljósleiðarakerfi sem hafa fengið ríkisstyrk skulu vera opin öllum þjónustuveitendum og fulls jafnræðis skal gætt. Samkeppni milli þjónustuveitenda er ætlað að tryggja að notendur njóti alltaf hagstæðustu kjara.