- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Leikskólinn Sólvellir auglýsir eftir deildarstjórum á þrjár deildir sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Vinnutími kl. 8:00-16:00.
Leikskólinn Sólvellir er fjögurra deilda leikskóli með nemendur á aldrinum eins til fimm ára. Skólaárið 2016-2017 verður fjöldi nemenda á bilinu 50-55.
Hæfniskröfur:
· Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
· Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
· Færni í mannlegum samskiptum
· Frumkvæði í starfi
· Jákvæðni, sveigjanleiki og áhugasemi
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
· Góð íslenskukunnátta
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um störfin veita Björg Karlsdóttir, leikskólastjóri eða Ingibjörg Þórarinsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 438 6645. Ennig má senda fyrirspurnir á leikskoli@grundarfjordur.is
Sótt er um rafrænt gegnum heimasíðu Grundarfjarðarbæjar, www.grundarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til 1. maí 2016.