- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Leikskólinn Sólvellir óskar eftir að ráða leiðbeinendur til starfa. Ráðið er í starfið sem fyrst.
Leitað er að jákvæðum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna með börnum, eru jákvæðir og eiga gott með samskipti og eru sveigjanlegir og tilbúnir að takast á við fjölbreytt, faglegt og lifandi leikskólastarf.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Vinsamlegast athugið að Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að fara fram á sakavottorð umsækjenda.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiðdís Lind Kristinsdóttir, leikskólastjóri,
í síma 438 6645 eða í heiddis@gfb.is
Sótt er um starf leiðbeinanda á heimasíðu leikskólans https://solvellir2.leikskolinn.is/
Leikskólinn Sólvellir er þriggja deilda leikskóli með rúmlega 45 nemendur á aldrinum
1-4 ára. Skólinn starfar eftir viðurkenndum hugmyndum og kenningum í uppeldisfræði.
Vakin er athygli á stefnu Leikskólans Sólvalla um að ráða öll kyn til starfa.
Umsóknarfrestur er til 31. mars nk.
Vertu með okkur í skemmtilegu og þroskandi starfi!