- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Vinnutími er 4-8 klst. á viku yfir vetrarmánuðina. Um er að ræða vinnu 1-2 kvöld í viku. Jafnframt felst starfið í ferðum v/viðburða.
Grundarfjarðarbær auglýsir eftir jákvæðum og samskiptahæfum leiðbeinanda í félagsmiðstöð. Menntun á sviði uppeldismála er æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður D. Benidiktsdóttir, forstöðumaður félagsmiðstöðvar í síma 690 6559 eða á netfangi ragnheidur@gfb.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsness (SDS).
Umsóknarfrestur er til 27. október 2015. Ráðið er í starfið fljótlega.