- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Leikskólinn Sólvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara/matráð til starfa.
Ráðið er í störfin frá 13. ágúst 2024.
Leikskólinn Sólvellir er þriggja deilda leikskóli með um 50 nemendur á aldrinum 1-4 ára. Skólinn starfar eftir viðurkenndum hugmyndum og kenningum í uppeldisfræðum. Leikskólinn vinnur markvisst að uppbyggingu innra starfs, stjórnun og mótun skólanámskrár og innleiðing á nýrri menntastefnu er hafin.
Helstu verkefni og ábyrgð leikskólakennara við leikskólann Sólvelli:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Fáist ekki leikskólakennari eða einstaklingur með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu, kemur til greina að ráða leiðbeinanda.
Starfssvið:
Helstu verkefni mátráðs:
Starfið felst í yfirumsjón með eldhúsi. Matráður sér um matseld á heitum mat og bakstur, skipuleggur matseðla og annast innkaup á matvörum. Matráður hefur umsjón með matseld og frágang hádegismatar fyrir leikskólann Sólvelli, ásamt morgunmat og miðdagshressingu.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2024
Laun eru greidd skv. kjarasamningi Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Sif Sævarsdóttir, leikskólastjóri í síma 4386645 á milli kl. 9:00 – 16:00 alla virka daga eða á netfangið margretsif@gfb.is
Umsóknum um starfið skal fylgja greinargott yfirlit yfir menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað sem umsækjandi telur máli skipta. Einstaklingar af öllum kynjum er hvattir til að sækja um.
Vinsamlegast athugið að Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að fara fram á sakavottorð umsækjenda.
Sótt er um starfið með því að senda á netfangið margretsif@gfb.is