Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Tendrun jólaljósa í Grundarfirði
Fyrsta sunnudag í aðventu þann 1. desember kl 17:30 verður kveikt á jólatrénu við heilsugæsluna. Líkt og fyrri ár sjá félagar í Lions um að kveikja á trénu.
Barnakór grunnskólans syngur lög og það aldrei er að vita hvort að jólasveinarnir kíki í heimsókn og verði með glaðning fyrir krakkana.
Hlökkum til að sjá sem flesta og eiga notalega stund saman.