Líkt og undanfarin fimmtán ár gekkst Skessuhorn – Fréttaveita Vesturlands fyrir vali á Vestlendingi ársins, en verðlaunin falla í hlut þess eða þeirra íbúa í landshlutanum sem þykja hafa skarað framúr á einhvern hátt á árinu. Lesendur Skessuhorns sendu inn fjölmargar ábendingar og voru samtals 22 einstaklingar tilnefndir að þessu sinni. Í fyrsta skipti frá því val á Vestlendingi ársins hófst urðu hjón hlutskörpust. Það eru þau Bjarni Sigurbjörnsson og Guðrún Lilja Arnórsdóttir bændur og ábúendur að Eiði við Kolgrafafjörð á Snæfellsnesi. Hlutu þau langflestar tilnefningar.

Aðrir, sem hlutu þrjár tilnefningar eða fleiri að þessu sinni, eru í stafrófsröð: Dr. Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri fyrir verðmæta skráningu heimilda um tækni og störf til sveita, Garðar Stefánsson og Sören Rosenkilde stofnendur Norðursalts á Reykhólum, Gísli Ólafsson ferðaþjónn í Grundarfirði, Guðrún Haraldsdóttir gangbrautavörður í Borgarnesi, Kristín Gísladóttir og Sigrún Katrín Halldórsdóttir í Borgarnesi fyrir vitundarvakningu gegn einelti, Ingólfur Árnason forstjóri Skagans á Akranesi fyrir uppbyggingu atvinnulífs, Ólafur Adolfsson lyfsali á Akranesi fyrir ríka þjónustulund, Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA fyrir störf að hagsmunamálum launþega og Þór Magnússon á Gufuskálum fyrir uppbyggingu í ferðaþjónustu.

 

Öflugir útverðir byggðar

Hjónin og bændurnir Bjarni og Guðrún Lilja að Eiði komu oft fyrir í umfjöllun fjölmiðla á liðnu ári. Ekki hefur farið framhjá lesendum Skessuhorns hversu umfangsmikill síldardauðinn í Kolgrafafirði var og áhrif hans þegar um 52 þúsund tonn af síld drápust í firðinum. Síldina rak ýmist í bunkum á fjörur við Eiði eða sökk til botns til rotnunar með neikvæðum afleiðingum á lífríkið. Útlit var fyrir mikla umhverfismengun og var grútarváin allt um lykjandi og daunninn eftir því. Hamförunum tók heimilisfólkið að Eiði hins vegar af mikilli stillingu svo eftir var tekið í samfélaginu. Bændur eru öðrum þræði útverðir byggðar í landinu gagnvart heimi náttúrunnar. Má af reynslu síldardauðans í Kolgrafafirði sjá að hjónin að Eiði valda því hlutverki einkar vel og eru að mati blaðsins og lesenda þess öðrum til fyrirmyndar. Skessuhorn óskar þeim hjónum innilega til hamingju með vegsemdina.