- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Undanfarið hafa Íslenskar orkurannsóknir unnið að jarðhitaleit við Berserkseyri milli Hraunsfjarðar og Kolgrafafjarðar fyrir Grundfirðinga. Tilgangurinn var að kanna hvort þar mætti fá nægjanlega heitt vatn til húshitunar í Grundarfirði. Lengi hefur verið vitað um hita þarna en það verður fyrst með tilkomu brúar yfir Kolgrafafjörð að hagkvæmt verður að leggja hitaveitu frá Berserkseyri til Grundarfjarðar.
Um 40-50°C heit laug er á skeri sem liggur 350 – 400m frá landi og kemur heita vatnið þar upp um sprungur. Efnagreiningar á vatninu bentu til þess að þar mætti vænta 80-90°C vatns með djúpborunum. Boraðar hafa verið allmargar grunnar holur til að mæla hitastigul í grenndinni og hefur komið í ljós að jarðhitakerfið sem þarna er fylgir ANA stefnu skammt undan landi og er í eystri enda gosspungukerfisins í Hraunsfirði.
Til að ná til sprungnanna stendur nú yfir borun grannrar rannsóknarholu á ská frá ströndinni inn undir meinta jarðhitasprungu. Á tæplega 300m hitti borinn í vatnsæð og renna nú um 6 l/s af tæplega 80°C vatni úr holunni. Þar með hefur tekist að sýna fram á að hægt er að ná þarna nægjanlega heitu vatni til hitaveitu fyrir Grundarfjörð. Í framhaldinu verður væntanlega boruð fullvaxin vinnsluhola sem sækir vatnið dýpra í sprungukerfið.
Frétt á heimasíðu Íslenskra orkurannsókna www.isor.is