Auglýsing frá Heilsueflingunni: 

Mánudaginn 13. janúar byrjar Heilsuefling60+ í Grundarfirði aftur eftir langt og gott jólafrí.

Heilsuefling 60+ er félagsskapur fyrir alla Grundfirðinga 60 ára og eldri og þau sem búa við örorku. Það er Félag eldri borgara í Grundarfirði sem stendur fyrir starfinu, með styrk frá Grundarfjarðarbæ. Hópurinn er undir leiðsögn einkaþjálfaranna Ágústu og Rutar. Við hittumst 2x í viku í Líkamsræktinni og 2x í viku í íþróttahúsinu, hreyfum okkur, spjöllum og höfum gaman.

Hreyfing getur verið góð forvörn, andleg, líkamleg og félagsleg. Með því að stunda reglubundna hreyfingu má draga úr kvíða, þunglyndi, einmannaleika, byltuhættu og sjúkra- og lyfjakostaði. En heilsueflingin snýst fyrst og fremst um aukin lífsgæði, félagsskap og gleði.

Hjá okkur er eitthvað fyrir alla, fyrir vana og óvana, í frábæru eða lélegu líkamlegu formi.

Áhugasamir geta kynnt sér málið betur á feisbúkksíðunni okkar facebook.com/groups/heilsuefling60 eða náð sér í kynningarbækling á heilsugæslustöðinni.

Við hlökkum mikið til mánudagsins, að hitta iðkendur okkar aftur og bjóðum nýja hjartanlega velkomna.

Það kostar ekki krónu að koma í prufutíma og kynna sér starfið.

Kveðja

Rut og Ágústa