Green Globe samtökin halda áfram að vera í þróun eins og öll önnur fyrirtæki/samtök. Þau hafa nú gert endurbætur og breytingar bæði á viðmiðum og stöðlum til úttektar. Eins hafa þau breytt nafni samtakanna sem heita nú bara GREEN GLOBE. Talan 21 er fallin aftan af. Ný vefslóð samtakanna er www.greenglobe.org.

Nýtt lógó hefur verið hannað til að fylgja þessum breytingum og verður það væntanlega það sem sveitarfélögin á Snæfellsnesi fá bæði eftir að viðmiðum (Benchmarking) verður mætt næst og eins eftir vottunina.