Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins, Funchal, lagðist að bryggju hér í morgun.

Með skipinu eru einkum Bretar að þessu sinni og um 150 þeirra ætla að rölta um bæinn í stað þess að fara í skipulagðar ferðir.

Funchal stoppar stutt við og mun leggja úr höfn kl. 14 í dag.