- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Héraðsnefnd Snæfellinga boðar til fundar um þjóðlendumálin á Snæfellsnesi þriðjudaginn 14. júlí 2009 kl. 17.30. Fundurinn verður haldinn í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Á fundinn mætir Óðinn Sigþórsson frá Búnaðarsamtökum Vesturlands og fer yfir helstu atriði þessara mála. Allir sem hafa hagsmuni í þessum málaflokki svo sem landeigendur og sveitarstjórnarfólk eru hvött til þess að mæta og kynna sér stöðuna.