- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Þann 7. apríl sl. samþykkti bæjarstjórn tilteknar aðgerðir til stuðnings atvinnulífi vegna áhrifa Covid-19.
Meðal annars var samþykkt að bjóða fulltrúum fyrirtækja til samtals um stöðu mála, horfur og frekari aðgerðir vegna ástandsins af völdum Covid-19.
Miðvikudaginn 22. apríl nk. kl. 16:15 er fulltrúum fyrirtækja í ferðaþjónustu boðið að taka þátt í samtali við bæjarstjórn á fjarfundi.
Fundurinn er hugsaður til upplýsingaöflunar fyrir bæjarstjórn, en einnig til undirbúnings vegna aðgerða og ráðstafana bæjarstjórnar.
Fulltrúar frá fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem vilja taka þátt í fundinum eru beðnir um að setja sig í samband við bæjarskrifstofuna í netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is eða í síma 430 8500 og láta vita af sér. Fundurinn verður fjarfundur og fá fundarmenn senda vefslóð til að tengjast inn á fundinn.
Á næstunni verður haft samband við fulltrúa fleiri fyrirtækja vegna svipaðra samtala.