- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum 7. apríl sl. aðgerðir vegna áhrifa Covid-19 á samfélagið.
Aðgerðirnar byggjast á heimildum í nýlegum breytingum á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og leiðbeiningum Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Aðgerðirnar felast m.a. í því að gjaldendur fasteignagjalda í C-flokki, sem eiga við tímabundna rekstrarörðugleika að stríða vegna tekjufalls, geta óskað eftir frestun á allt að þremur greiðslum fasteignagjalda, sem eru á gjalddaga 1. mars til 1. desember 2020. Gjalddagi og eindagi greiðslna getur frestast til allt að 15. janúar 2021. Skilyrði fyrir umsókn eru að gjaldandi sé ekki í langvinnum vanskilum á opinberum gjöldum, sköttum og öðrum greiðslum til sveitarfélagsins og að ekki hafi verið eða verði greiddur út arður eða eigin hlutir keyptir á árinu 2020, né að úttekt eiganda innan ársins fari umfram reiknað endurgjald, eins og fyrr
Umsókn um frestun skal senda á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is.
Í umsókn skal koma fram heiti fasteignar og fastanúmer, nafn og kennitala gjaldanda, símanúmer og netfang. Þá skal tilgreint hvaða gjalddagar það eru sem óskað er eftir að frestað verði. Hægt er að sækja um frestun á greiðslu allt að þriggja gjalddaga.
Með umsókn fylgi rökstuðningur um tekjufall og eftirfarandi gögn:
Samþykkt bæjarstjórnar felur í sér að á næstu þremur mánuðum verði metið hvort fresta þurfi gjalddögum enn frekar. Fyrirkomulag greiðslna verði ákveðið í samvinnu við hvern og einn gjaldanda.
Lesa má nánar um samþykkt bæjarstjórnar í frétt hér á vef bæjarins.