- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Framkvæmdir við sparkvöll á lóð grunnskólans eru nú á lokastigi. Verið er að vinna við lagningu gervigrass sem áætlað er að verði lokið í vikunni. Þýskir verktakar á vegum KSÍ sjá um verkið.
Þýskir verktakar að störfum |
Næstkomandi mánudag mun jarðvinnuverktaki koma fyrir ljósastaurum til lýsingar og í beinu framhaldi verður svæðið umhverfis völlinn þökulagt. Einnig er ráðgert í næstu viku að ljúka við uppsetningu á rekkverki umhverfis völlinn. Búast má við því að í lok næstu viku verði framkvæmdum við sparkvöllinn lokið.